Logi |
LyricsAfvegaleiddur logileikur um hjartans dyr, brot af því stóra báli sem brann hér áður fyrr. Andvari gæti glætt hann, gert hann að báli á ný en hvorki von né vindar vita víst hvar ég bý. Engu má svo sem muna, ég man jú liðna tíð þegar eldur rann um æðar mér og uppsprettuna kveikti vonin blíð. Og ég get það en get það ekki, ég skil það, skil ekki neitt, bæði veit það og veit það ekki enn. Ég man það en man það ekki, ég sé það, sé ekki glóru og ég er það og er það ekki í senn. Afvegaleiddi logi, leiktu þér enn um sinn, kannski þú getir kveikt upp kulnaða eldinn minn. Heimurinn snýst í hringi, höfuð mitt situr kjurrt, kal grær í túni en tregann tekst ekki að flæma burt. Engu má svo sem muna, margt getur breyst svo fljótt alveg eins og eldur blossar upp í auðu húsi um miðja nótt. :,: Og ég get það en get það ekki, ég skil það, skil ekki neitt, bæði veit það og veit það ekki enn. Ég man það en man það ekki, ég sé það, sé ekki glóru og ég er það og er það ekki í senn. :,: |
| Short Song Description: Lyrics in Icelandic. |
| Long Song Description: The song is in the 68th Grammy nomination ballots (as a jazz song). |
| Story Behind the Song: Written 30 years ago (music and lyrics), finding its way to being recorded 2025. |
| Lyric Credits: Jón Hallur Stefánsson |
| Music Credits: Ingvi Þór Kormáksson |
| Producer Credits: Eðvarð Lárusson, Birgir Jóhann Birgisson |
| Performance Credits: Latínudeildin & Una Stef |
| Label Credits: Hrynjandi |
| Song Length: 4:37 |
| Primary Genre: R & B-Soul |
| Secondary Genre: Jazz-Smooth Jazz |
| Tempo / Feel: Medium (111 - 130) |
| Mood 1: Composed |
| Mood 2: Welcoming |
| Language: Other |